Traveler´s passport size notebook - #5 innvols með þynnri pappír en fleiri blaðsíðum

740 kr

//Passport size//


Pappírinn í innvolsi #5 er þynnri en í hinum en blaðsíðurnar að sama skapi fleiri eða 80.  Pappírinn er góður miðað við að hann er mun þynnri og blek rennur til að mynda ekki til á pappírnum. Aftur á móti sést í gegnum pappírinn þegar skrifað er með penna eða notaður yfirstrikunarpenni.


Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá teygjur sem settar eru um kjölinn á innvolsinu og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.