Traveler´s company - Brass merkiplattar 6 stk.

2.950 kr

BRASS merkiplattar sem gera allt fallegra og hægt er að líma á hvað sem er!

Merkiplattarnir eru hluti af ritfangalínu Traveler´s company en allt í þeirri línu er úr brassi. 

Í pakkanum eru 6 stk. merkiplattar sem hægt að líma eða sauma framan á
Traveler´s notebook skipulagsbókina. Sömuleiðis er hægt að líma þá á box eða hvað sem er, því með þeim fylgja límmiðar með lími beggja vegna. Svo er líka mjög fallegt að stinga göt og þræða tvinna í gegnum götin á plöttunum og festa þannig á Traveler´s bókina eða allt það, sem hægt er að stinga í gegnum.

Útlitið á brassinu minnir mann á gamla tíma. Útlitið breytist líka með tímanum og gerir ritfangið þitt bara að enn meiri gersemi. 

 

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.