Númer #2 er bók með rúðustrikuðum blaðsíðum og er hver kassi 5x5mm.
Þú þarft ekki að vera kassalaga til að nota þessa, sumum finnst gott að skrifa í svona bók, öðrum að teikna og sumum finnst þetta bara fallegur bakgrunnur. Gæðapappír er í bókinni og hægt er að skrifa með blekpenna án þess að blekið renni til. Bókin og pappírinn er framleiddur er framleitt í japan.
Stærð : 11 x 22cm
Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá bönd sem sett eru um kjölinn á bókinni og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.
Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.